NVF Fundur íslandsdeildar 29. október 2015 Matthildur B. Stefánsdóttir
E4 Förbifart Stockholm Undirtitill 5.11.2015 Matthildur B. Stefánsdóttir
Kort af framkvæmdasvæði E4 Förbifart Stockholm.
E4 Förbifart Stockholm Ný veglína vestur af Stokkhólmi sem mun verða hluti af hringleið utan um borgina. Byggð til að tengja N- og S-hluta sýslunnar (län) Framkvæmdin er 21 km langur vegur þar sem 18 km verða í tveimur aðskildum, samsíða, göngum með 3 akreinar í hvora átt. Hjáleiðin mun létta umferð af Essingeleiðinni (frá 1967) og miðbæ Stokkhólms og draga úr hættu á umferðartruflunum í miðbænum. Áætlað er að framkvæmdin muni kosta 27,6 milljarða SEK á verði ársins 2009.
Forsagan Mikil fólksfjölgun er í Stokkhólmi og fjölgar íbúum um 35.000 manns á ári. Árið 2035 er ÁDU áætluð 140.000 bílar. Borgin er byggð á eyjum í Mälaren og mikil þörf er fyrir að bæta samgöngur á milli eyja í vestanverðri borginni. Farið hefur verið í gegnum fjögurra þrepa ferli (fyrstegsprincipen), þar sem skoðað er hvað hægt er að gera án þess að grípa til framkvæmda. Nú er svo komið að ekki er hægt að bæta samgöngur án þess að hefja framkvæmdir við vegakerfið í borginni.
5.11.2015 Ferjan til Lovö
Forsagan Framkvæmdin mun taka um 10 ár en undirbúningur hennar nær nokkuð aftur í tíma: 1930: Fyrstu hugmyndir. 2001: Frumdrög lágu fyrir. 2005: Skýrslan Miljökonsekvensbeskrivning Nordsydlige förbindelser i Stockholmsområdet. 2009: Umhverfisráðuneytið gaf leyfi fyrir framkvæmdinni með ýmsum skilyrðum varðandi vatn, hávaða og loftmengun. Leyfið var kært, en ekki dregið til baka. 2011: Framkvæmdaráætlun gefin út. Þar var áætlun um: frekari rannsóknir, t.d. á Natura 2000 svæðum skipulagsmál
5.11.2015 Drottningholmen á Ekerö
MÁU Skoðað var hvaða áhrif framkvæmdin hefði á orkunýtingu í framkvæmd og í rekstri. LCA greiningar þar sem m.a. var horft til efnisvals, hugað að því að nota efni og aðferðir sem losa sem minnst CO 2. Lögð er áhersla á að nota sem minnst af hættulegum efnum og á framkvæmdatíma verður eftirlit með notkun þeirra. Í umhverfismati var fjallað um mótvægisaðgerðir, en þær þurfa að liggja fyrir áður en framkvæmdir hefjast. Allar slíkar aðgerðir eiga að vera í fullu samráði við landeigendur. Árið 2014 setti Mark- och miljödomstolen skilyrði um samráð um stjórnun umhverfisþátta á framkvæmdatíma (kontrollprogramm).
Umhverfisþættir Grunnvatn Efnisflutningar Náttúra, menning og útivist Stöðuvötn Heilsa Drottningholm slottsteater byggt 1764-1766
Umhverfisþátturinn grunnvatn Grunnvatnsstaða í tjörnum getur lækkað t.d. í Hansta (Natura 2000). Trafikverket mun vakta ástand grunnvatns fyrir framkvæmdir, á meðan á þeim stendur og eftir að þeim lýkur. Í tilfelli mikilla áhrifa á grunnvatn þarf Trafikverket að flytja neyðartanka með hreinu vatni á viðkomandi svæði.
Umhverfisþátturinn efnisflutningar Flytja þarf milljónir tonna af steinefnum frá framkvæmdasvæðum. Helmingurinn af því efni verður fluttur burt með skipum sem sigla frá þremur tímabundnum höfnum á framkvæmda-tímanum og komið fyrir á tipp. Hluti efnisins er notaður innanlands, en mögulegt að hluti þess verði fluttur til Eystrasaltslandanna. www.trafikverket.se/contentas sets/7eb273221a214c619d09 94a81c380e9b/faktablad_aka lla_webb.pdf
Umhverfisþátturinn náttúra, menning og útivist Stokkhólmur er einstök borg vegna dýralífs innan borgarmarkanna. Jarfar eru marðardýr sem finnast í Skandinavíu, Síberíu, Kanada og Alaska. Þeir eru sjaldgæfir á Stokkhólmssvæðinu og ber að vernda. Við undirbúning mats á umhverfisáhrifum kom fram að á fyrirhuguðu framkvæmdasvæði væru nokkur náttúruverndarsvæði: Järvafeltet Hansta (Natura 2000). Framkvæmdin getur haft áhrif á ferskvatnssalamöndrur, í útjaðri svæðisins. Lovö er eyja í Mälaren. Þar er Drottningholm, bústaður konungsfjölskyldunnar. Öll eyjan er vernduð, en svæðið við höllina er á menningarminjaskrá Unesco, vegna leikhúss sem byggt var árið 1766 og konungshallarinnar. Einnig hefur hallargarðurinn mikið verndargildi fyrir sögu garðlistar í Skandinavíu. Sätraskogen naturreservat Grimsta naturreservat Edeby ekhage (Natura 2000).
5.11.2015
Umhverfisþátturinn stöðuvötn Mälaren og fleiri vötn. Borgin er byggð á eyjum í Mälaren.
Umhverfisþátturinn heilsa Hljóðvist Það þarf að skila skýrslu til verkkaupa um allt sem er umfram áætlun. Það er m.a. gert ráð fyrir kostnaði við mótvægisaðgerðir s.s. að skipta um rúður hjá íbúum, einangra hús og setja glerveggi að hluta fyrir svalir hjá íbúum sem munu verða fyrir óþægindum vegna umferðarhávaða. Einnig að byggja skjólveggi utanhúss til að draga úr hávaðanum. Loftgæði Losunin er mun meiri á framkvæmdatíma en á rekstrartíma. Á framkvæmdatíma er losunin 57 þús. tonn/ári en að loknum framkvæmdum 1-90 þús. tonn/ári. Efnisflutningar með skipum mun þó draga verulega úr CO2 losun á framkvæmdatíma.
Nýjir staðlar og hugbúnaður hjá Trafikverket Undirtitill 5.11.2015 Matthildur B. Stefánsdóttir
Staðlar um mat á gildi náttúruverndarsvæða Í Svíþjóð eru nú nýir staðlar, sem voru tilbúnir sumarið 2014, um hvernig á að meta verndargildi náttúruverndarsvæða. Svensk standard for naturvärdesinventering NVI: Staðallinn gefur viðmið um það hvaða náttúra er verðmæt og hver ekki. Trafikverket kom að gerð staðalsins og hafði reyndar forgöngu að því að farið yrði í gerð hans.
Hugbúnaður - TrafikverketEKO Ekologigruppen hjá Trafikverket notar forrit sem heitir TrafikverketEKO á i-pad: Skráir upplýsingar beint á staðnum við rannsóknir. Það einfaldar vinnuna, því það þarf ekki að skrá fyrst á pappír og svo í tölvu þegar heim er komið.
Nánari upplýsingar www.nvfnorden.org/hemsida/utvalg/moder-i-perioden- 2012-2016/ Bæklingurinn E4 Förbifart Stockholm Ferðaskýrsla Vegagerðarfólksins í Dropboxi íslandsdeildarinnar www.trafikverket.se/forbifartstockholm www.trafikverket.se/nara-dig/stockholm/projekt-istockholms-lan/forbifart-stockholm/ http://www.slu.se/pagefiles/226859/presentation2.pdf www.sis.se/anl%c3%a4ggningsarbete/allm%c3%a4nt/s is-tk-555 http://ec.europa.eu/environment/nature/natura2000/index _en.htm.
5.11.2015 Norra Järvafältet
Hugmyndir um breytingar á skipulagi NVF starfsins 2017-2020 5.11.2015 Matthildur B. Stefánsdóttir
Tillögur stjórnar að breytingum Fækkun nefnda Landsnefndir lagðar niður Nefndirnar fái ákveðin verkefni frá yfirstjórn NVF
5.11.2015 Takk fyrir